Sumarnámskeið 2019
Skráningarfrestur var til og með 15.apríl en eftir það fer viðkomandi á biðlista.  Athugið að það getur farið eftir hljóðfærum/fjölda í hópum hvort nemendur komist að á námskeiðinu eftir að umsóknarfrestur er liðinn.

Sumarnámskeið Íslenska Suzukisambandsins verða haldin í Hveragerði og á Selfossi í júní 2019.  Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl  2019.  Umsókn telst gild þegar greiðsla hefur borst, í síðasta lagi 15.apríl.
 
Námskeið fyrir píanónemendur 21.-23.júní á Selfossi  -- Fullt gjald 25.000 kr  (takmarkaður fjöldi þáttakenda)
Námskeið fyrir gítarnemendur 21.-23.júní í Hveragerði -- Fullt gjald 25.000 kr

Námskeiðið fyrir strengi er tvískipt. Annarsvegar fyrir bók 1 til bók 2 lag 7 og hinsvegar frá bók 2 lag 7.

Styttra námskeið fyrir strengi 21.-23.júní  í Hveragerði: fiðlu-, víólu- og selló nemendur komna að lagi númer 7 í bók 2 (eru staddir í bók 1 eða 2 að lagi 7).
                    - Fullt gjald 25.000 kr. / Tilbrigðanemendur 18.000 kr.          

Lengra námskeið fyrir strengi 19.-23.júní í Hveragerði: fiðlu-,víólu og sellónemendur frá lagi 7 í bók 2 og út bók 10.
                    - Fullt gjald 32.000 kr.

Tilbrigðanemendur eru nemendur sem eru staddir í  tilbrigðum og/eða komin með 2-3 lög áfram (einungis í boði fyrir fiðlu-, víólu- og sellónemendur).  Dagskráin fyrir þá verður styttri en fyrir lengra komna nemendur.  

Nánari upplýsingar um systkinaafslátt má finna aftast í skráningarforminu.

Sambandið hefur er búin að fá vilyrði fyrir ódýrri gistingu í Hveragerði, þar sem 60-70 manns geta gist á dýnum í 3 herbergjum með stóru eldhúsi.

Gert er ráð fyrir að lengra strengjanámskeiðið hefjist um hádegið miðvikudaginn 19. júní en styttri námskeiðin að morgni föstudagsins 21. júní ( yngri strengir, píanó, gítar ).

Vinsamlega takið frá alla námskeiðsdagana.  Dagskráin stendur með hléum frá morgni til kvölds.  Athugið að nemendur þurfa að vera í fylgd með fullorðnum.

Námskeiðið er einungis í boði fyrir félagsmenn/nemendur í Íslenska Suzukisambandinu sem greitt hafa árgjald 2018-2019 (greitt eftir 1.okt, 2018).   Athugið einnig að námskeiðið er haldið með fyrirvara um að skráning sé næg.


Sign in to Google to save your progress. Learn more
Next
Clear form
Never submit passwords through Google Forms.
This content is neither created nor endorsed by Google. Report Abuse - Terms of Service - Privacy Policy